Hornafallajöfnur, hornafallaójöfnur, keilusnið, jafna hrings og sporbaugs, stikun og ofanvarp. Föll og ferlar
STÆR2LH05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
einföldum hornafallajöfnum og ójöfnum
keilusniðunum, jöfnum þeirra og rúmfræðilegum eiginleikum
vigrum og vigurreikningi
föllum og helstu fallahugtökum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
leysa hornafallajöfnur og ójöfnur
þekkja jöfnur keilusniða
stika einfalda ferla og finna jöfnur þeirra
meðhöndla fallstæður og fallahugtök
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta, þar með taldar sannanir í námsefni
beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur