Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1336983437

    Deildi, óbein deildun. heildi og heildunaraðferðir. fyrsta stigs deildajöfnur.
    STÆR3DÓ05
    10
    stærðfræði
    deildi, óbein deildun. heildi og heildunaraðferðir. fyrsta stigs deildajöfnur.
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Heildareikningur og hagnýting heildareiknings. Hlutheildun, breytuskipti í heildum, heildun ræðra falla. Lausnir á deildajöfnum með aðgreinanlegum breytum. 1. stigs deildajöfnur.
    STÆR3FD05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu aðferðum við að leysa ákveðin og óákveðin heildi
    • því hvað sé deildajafna og sérlausn og fullkomin lausn deildajöfnu
    • hagnýtingu framangreindrar stærðfræði á öðrum sviðum, s.s. í hagfræði, náttúruvísindum, umhverfismálum, tæknifræði, o.s.frv.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita óbeinni deildun á jöfnur og finna línulega nálgun við fall í gefnum punkti
    • beita hlutheildun, innsetningu og brotaliðun við lausn heilda
    • nota þrepunarlögmálið til þess að sanna fullyrðingar um náttúrulegar tölur
    • leysa deildajöfnur
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
    • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
    • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
    • geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta, þar með taldar sannanir í námsefni
    • beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur.
    Lokapróf og vinnueinkunn