Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1323876480

    Átakasvæði í heiminum
    SAGA3ÁS05
    4
    saga
    átakasvæði í heiminum
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Áfanginn fjallar fyrst og fremst um átakasvæði heimsins í dag einkum þau sem eru nær daglega í fréttum og umræðu en einnig þau sem hafa verið fyrirferðarmikil í umfjöllun síðustu áratugi. Sem dæmi um efni má nefna: Kína: Tíbet og Xinjiang, Kashmír, Afganistan og Pakistan, Ísrael/Palestína, Íran og Írak, Afríka: Kongó, Sómalía, Súdan og Rúanda, Evrópa: Norður-Írland, fyrrum Júgóslavía og Tjetsenía
    SAGA2MN05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hvar viðkomandi átakasvæði eru
    • hver er sögulegur bakgrunnur átakanna
    • hvaða öfl eru að verki og hvaðan þau sækja stuðning og fjármagn
    • hvaða möguleikar eru á lausn á viðkomandi átökum
    • hvort Ísland tengist eða hafi tengst viðkomandi átökum á einhvern hátt
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa fræðilega texta á íslensku og ensku og e.t.v. fleiri tungumálum og túlka merkingu þeirra
    • nýta internetið til að afla sér þekkingar á átökum dagsins
    • meta gildi ólíkra heimilda t.d. frá aðilum átaka, alþjóðastofnunum, fréttaveitum o.fl.
    • taka saman mislangar og/eða –ítarlegar úttektir um átök eða þætti þeirra á góðri íslensku
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • gera sér grein fyrir afleiðingum átakanna fyrir fólkið sem býr á svæðinu
    • átta sig á áhrifum átakanna á alþjóðastjórnmál og samskipti ríkja
    • koma þekkingu sinni og skilningi á efninu á framfæri með fjölbreyttum hætti
    • geta tekið þátt í skoðanaskiptum og rökræðum með jafningjum um efni áfangans
    • geta metið alþjóðleg átök út frá eigin forsendum og skilningi
    Lokapróf og vinnueinkunn