Áfanginn byggist upp á fræðilegri þekkingu á alhliða hreyfingu og heilsueflingu fyrir einstaklingin í nútímasamfélagi. Áhersluþættir eru m.a. mikilvægi upphitunar, þol-, styrktar- og liðleikaþjálfunar. Fjallað er um þol og þolþjálfun og hvernig byggja megi upp og viðhalda þoli. Farið er yfir þjálfunaráhrif á loftháðu og loftfirrtu þoli ásamt uppbyggingu á almennu og sérhæfðu þoli. Kenndar eru fjölbreyttar þjálfunaraðferðir allra þátta ásamt líkamsbeitingu í daglegu lífi og við styrktarþjálfun. Lögð er áhersla á mikilvægi styrks fyrir stoðkerfi líkamans og á verklega og fræðilega þætti styrktarþjálfunar. Farið er yfir mikilvægi liðleika og liðleikaþjálfunar og áhrif á vöðva og liðamót. Nemendur taka þátt í verklegum æfingum sem þjálfa alla þætti grunnþjálfunar og læra aðferðir til að meta eigið líkamsþrek. Markviss fræðsla varðandi forvarnargildi líkams- og heilsuræktar og neikvæð áhrif vímuefna á líkamann er grunnviðfangsefni í bóklegum hluta áfangans. Nemendur er hvattir til að hlúa að andlegri, líkamlegri- og félagslegri vellíðan sinni til framtíðar. Nemendur geta valið um eftirfarandi leiðir: 1) Hefðbundin líkams- og heilsurækt (kennsla í íþróttahúsi Miðbæjarskólans og nágrenni). 2) Útivist í nánasta umhverfi: Gengið um Reykjavík og nágrenni höfuðborgarsvæðisins, nemendur þurfa að mæta á brottfarastað og sjá um kostnað af ferðum og búnaði. 3) Skipulögð íþróttaiðkun innan íþróttafélags (stunda íþróttagrein innan sérsambanda ÍSÍ, keppni á Íslandsmóti og æfa undir leiðsögn íþróttafræðings).
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi upphitunar og liðleikaþjálfunar
styrktarþjálfun
fjölbreytni allra þátta til eflingar líkama og heilsu
þoli, uppbyggingu þess og mismunandi þolþjálfun
forsendum og áhrifum þjálfunar á líkama og heilsu
neikvæðum áhrifum ávana- og vímuefna á líkamann
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
tileinka sér fjölbreytta gunnþjálfun allra þátta
taka þátt í almennri og sérhæfðri upphitun
taka þátt í markvissri þolþjáfun og sérhæfðri þolþjálfun íþróttagreina
taka þátt í markvissri og fjölbreyttri styrktarþjálfun
mæla þol, styrk og liðleika
taka þátt í æfingum og hreyfingu sem stuðla að bættri líkamsbeitingu
taka þátt í leikjum og æfingum sem hafa áhrif á jákvæða upplifun og viðhorf til líkams- og heilsuræktar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skipuleggja og leysa af hendi verkefni sem snúa að eigin heilsueflingu
leysa af hendi æfingar og leiki sem viðhalda og bæta líkamlega-, andlega- og félagslega þætti