Í áfanganum er lögð áhersla á sem flesta þætti tengda almennri líkams- og heilsurækt og skipulagi þjálfunar. Nemendur eru fræddir á markvissan hátt um líkams- og heilsuvernd til að rækta líkama sinn sér til heilsubótar og ánægju til æviloka. Nemendur útbúa eigin þjálfunaráætlun auk þess sem fjallað er um líkamleg og sálræn áhrif reglubundinnar hreyfingar. Farið er yfir helstu líffræðilegar forsendur þjálfunar svo sem starfsemi vöðva, liða, tauga og blóðrásar. Fjallað er um gildi reglulegrar og skipulagðrar líkams- og heilsuræktar og nemendum gerð grein fyrir mikilvægi þess að bera ábyrgð á eigin heilsu og líkama. Nemendur fá fræðslu um gildi þess að lifa heilbrigðu lífi og fá að kynnast fjölbreyttum möguleikum umhverfisins til líkams- og heilsuræktar. Nemendur geta valið um eftirfarandi leiðir: 1) Hefðbundin líkams- og heilsurækt (kennsla í íþróttahúsi Miðbæjarskólans og nágrenni). 2) Skipulögð íþróttaiðkun innan íþróttafélags (stunda íþróttagrein innan sérsambanda ÍSÍ, keppni á Íslandsmóti og æfa undir leiðsögn íþróttafræðings) 3) Útivist í nánasta umhverfi: Gengið um Reykjavík og í nágrenni höfuðborgarsvæðisins, nemendur þurfa að mæta á brottfarastað og sjá um kostnað af ferðum og búnaði.
ÍÞRÓ2LD01
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
forsendum og áhrifum þjálfunar á líkama og heilsu
uppbyggingu þjálfunaráætlunar
markmiðssetningu
forvarnargildi almennrar heilsuræktar
mikilvægi svefns og hvíldar
mikilvægi slökunar
mikilvægi andlegrar, félagslegrar og líkamlegrar vellíðunar
klæðnaði til útivistar af ýmsu tagi
æfingum sem bæta líkamsstöðu og vinnutækni
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
stunda líkams- og heilsurækt
gera styrkjandi og mótandi æfingar fyrir helstu vöðva og liðamót líkamans
æfa slökun
æfa líkamsbeitingu og vinnutækni
nýta sér möguleika til að flétta hreyfingu inn í daglegt líf og starf
nýta sér möguleika til heilsuræktar í nánasta umhverfi og úti í náttúrunni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
leysa af hendi verkefni sem snúa að skipulagningu eigin þjálfunar
leysa af hendi æfingar og leiki sem viðhalda og bæta samskipti
taka þátt í leikjum og æfingum sem hafa áhrif á jákvæða upplifun og viðhorf til íþrótta, líkams- og heilsuræktar
greina frá afstöðu sinni til heilbrigðs lífsstíls
glíma við fjölbreytt verkefni sem snúa að alhliða hreyfingu, líkams- og heilsurækt
leysa af hendi verkefni, æfingar og leiki sem viðhalda og bæta almenna líkamshreysti
taka þátt í íþróttum og útivist þar sem krafist er sérstaks útbúnaðar, t.d. gönguferðum, skíðaferðum, hjólreiðum og fl.