Þetta er grunnáfangi í sálfræði og ætlað að kynna nemendum fræðigreinina sálfræði, eðli hennar sögu og þróun. Helstu sálfræðistefnur eru kynntar og grunnhugtök. Þá er fjallað um starfssvið sálfræðinga og helstu undirgreinar. Nemendur kynnast rannsóknaraðferðum sálfræðinnar bæði bóklega og verklega. Fjallað er sérstaklega um námssálfræði bæði á fræðilegan og hagnýtan hátt og nemendur læra um mismunandi tegundir náms og minnisaðferðir. Fjallað er um samspil hugsunar, hegðunar og tilfinninga, sjálfsmynd, mannleg samskipti, þróun náinna sambanda og almennt um mannlegt eðli.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þróun fræðigreinarinnar sálfræði
grundvallarhugmyndum sem móta kenningar í sálfræði
helstu frumkvöðlum í greininni
víðfeðmi sálfræðinnar og helstu undirgreinum hennar
hagnýtu gildi sálfræðinnar
leiðum sálfræðinnar til að útskýra hugsun, hegðun og tilfinningar manneskjunnar
mótunaröflum einstaklinga og hópa
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa í og skilja umfjöllun um helstu hugmyndir sem mótað hafa sálfræðina
beita algengustu hugtökum sálfræðinnar á skýran og skilmerkilegan máta
skoða sína eigin hegðun og annarra út frá grundvallarhugmyndum sálfræðinnar
skoða eigin hugsun og tilfinningar út frá grundvallarhugmyndum sálfræðinnar
tjá kunnáttu sína á munnlegan og skriflegan hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
gera sér grein fyrir mótunaráhrifum umhverfis á sjálfan sig og aðra
gera sér grein fyrir samspili hegðunar, hugsunar og tilfinninga
geta með einföldum hætti yfirfært sálfræðilega þekkingu á eigin sjálfsmynd
tjá sig skipulega og gagnrýnið um einstaka efnisþætti
afla sér upplýsinga, greina helstu atriði þeirra og hagnýta sér
geta framkvæmt einfalda rannsókn og áttað sig á helstu niðurstöðum