Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1326447166

    Lokaverkefni: heimildaritgerð
    LOKA3LH03
    1
    lokaverkefni
    lokaverkefni: heimildaritgerð
    Samþykkt af skóla
    3
    3
    Í áfanganum vinna nemendur lokaverkefni sem byggir á fræðilegri þekkingu á tilteknu námssviði/sérgrein nemandans og þarf viðfangsefnið að vera á 3. þrepi. Nemendur fá kennslu í heimildaritgerðarsmíð og þjálfun í þeim fræðilegu vinnubrögðum sem tíðkast við vinnslu og frágang slíkrar ritgerðar. Krafist er vitsmunalegrar og verklegrar leikni til að vinna úr heimildum. Ætlast er til að nemendur öðlist hæfni til að nýta fyrri þekkingu og skilning við úrvinnslu efnisins. Nemendur vinna undir verkstjórn kennara á sjálfstæðan hátt sem krefst frumkvæðis, sköpunar og ábyrgðar á eigin námi.
    Nemandi skal hafa lokið a.m.k. 130 einingum af námi sínu til stúdentsprófs
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • ritgerðasmíð og heimildavinnu
    • helstu hugtökum sem tengjast gerð heimildaritgerðar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota fræðileg vinnubrögð við heimildaritgerðarsmíð
    • beita gagnrýninni hugsun við úrvinnslu efnis
    • beita skipulegum aðferðum við úrvinnslu efnis
    • koma efni á framfæri á vel uppbyggðan, skýran og greinargóðan hátt
    • lesa fræðilegan texta á íslensku og erlendu tungumáli
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nota ýmsar aðferðir við að leysa viðfangsefni
    • skipuleggja vinnutíma sinn og forgangsraða viðfangsefnum
    • nýta fyrri reynslu, þekkingu og skilning við úrlausn nýrra viðfangsefna
    • breyta hugmynd í afurð
    Námsmat fyrir lokaverkefnið byggir á einkunn íslenskukennara (50%) og faggreinakennara (50%)