Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1328006826

    Atóm, mól og efnahvörf, byrjunaráfangi í efnafræði á náttúruvísindabraut
    EFNA2AM05
    4
    efnafræði
    atóm, mól og efnahvörf. byrjunaráfangi í efnafræði á náttúruvísindabraut
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í þessum fyrsta áfanga í efnafræði er byrjað á því að láta nemendur vinna með hugtök og þekkingu úr grunnatriðum efnafræðinnar. Samtímis því eru nemendur þjálfaðir í þeim vinnubrögðum sem notuð eru við kennslu í þessari grein. Nemendur vinna saman í hópum og lögð er áhersla á sjálfstæði og ábyrgð nemandans á eigin námsframvindu. Efnisþættir sem teknir verða fyrir í áfanganum eru: hrein efni og efnablöndur, eiginleikar efna, mælistærðir og tölur, markverðir tölustafir og óvissa, uppbygging atóma, jóna og sameinda, efnatákn og helstu efnabreytingar, lotukerfið, nafnakerfi ólífrænna efna, mólhugtakið, hlutföll í efnajöfnum, helstu tegundir efnabreytinga, styrkur lausna og þynningar, rafeindaskipan atóma og jóna.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • meðferð og notkun talna í náttúruvísindum
    • uppbyggingu atóma, jóna og sameinda
    • efnatáknum og helstu tegundum efnabreytinga
    • mólhugtakinu
    • hlutföllum efna í efnajöfnum
    • mólstyrk efna í vatnslausn
    • rafeindaskipan atóma og jóna
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • meðhöndla tölur og mælistærðir í efnafræði
    • nota lotukerfi og jónatöflu
    • setja upp efnajöfnu og stilla hana
    • beita mólhugtakinu og vinna með tengsl þess við hlutföll í efnajöfnum
    • skrifa rafeindaskipan atóma og nota hana til að spá fyrir um hleðslu jóna
    • framkvæma verklegar æfingar og vinna úr niðurstöðum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu
    • nota gögn eins og lotukerfi, jónatöflur og aðrar töflur við lausn verkefna
    • lesa úr efnatáknum og efnajöfnum
    • gera sér grein fyrir samspili efnafræði, stærðfræði og annarra náttúrufræðigreina
    • meta hvort niðurstöður útreikninga og mælinga séu raunhæfar
    • tengja efnafræðina við daglegt líf og umhverfi og sjá notagildi hennar
    Lokapróf og vinnueinkunn