Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1328089250

    Lífræn- og lífefnafræði
    EFNA3LÍ05
    6
    efnafræði
    lífræn- og lífefnafræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Efnisþættir sem teknir verða fyrir í áfanganum eru: nafnakerfi lífrænna efna, lögun sameinda og tengi, lífræn efnafræði, efnahvörf og fleiri tengd atriði, lífefnafræði, hendni sameinda, prótein, sykrur, lípíð, kjarnsýrur og ítarefni tengt efni áfangans.
    EFNA2EH05. Hægt er að taka áfangann samhliða EFNA3JL05 og EFNA3RA03
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • lögun sameinda
    • skautun sameinda
    • svigrúmablöndunum
    • fjöltengjum
    • hendni sameinda
    • grunnflokkun lífrænna efna
    • efnahvörfum lífrænna efna
    • efnaflokkunum: prótein, sykrur, lípíð og kjarnsýrur
    • ítarefni sem nemendur fjalla sérstaklega um í hópum og miðla áfram
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • finna lögun sameinda og hvort þær eru skautaðar eða ekki
    • finna svigrúmablöndun atóma og túlka
    • þekkja uppbyggingu og eiginleika fjöltengja
    • finna hendnimiðjur í sameindum og vinna með hugtakið hendni
    • nota flokkun og nafnakerfi lífrænna efna
    • skrifa og túlka efnahvörf lífrænna efna
    • teikna upp og skilja uppbyggingu lífefna í flokkunum: prótein, sykrur, lípíð og kjarnsýrur
    • afla sér upplýsinga um afmarkaða efnisþætti og vinna úr þeim
    • miðla upplýsingum til samnemenda
    • sýna sjálfstæði við framkvæmd verklegra æfinga og skilning við úrvinnslu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • sjá tengsl milli náttúrufræðigreina og geta yfirfært þekkingu milli þeirra
    • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu
    • nýta sér fræðilegan texta og gögn á markvissan hátt
    • miðla þekkingu sinni til annarra
    • meta eigin frammistöðu og annarra á gagnrýninn hátt
    • leggja mat á áreiðanleika niðurstaðna rannsókna sinna og annarra
    • taka ákvarðanir, mynda sér skoðanir og taka þátt í umræðum sem byggja á þekkingu í efnafræði
    • tengja efnafræðina við daglegt líf og umhverfi og sjá notagildi hennar
    • takast á við frekara nám í efnafræði og tengdum greinum á háskólastigi
    Vinnueinkunn og lokapróf