Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1328316746

    Lesskilningur og orðaforði
    DANS1LO05
    1
    danska
    lesskilningur, orðaforði
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í áfanganum er lögð áhersla á að orðaforði og lesskilningur nemenda verði aukinn og hlustun og tal þjálfað svo að þeir geti tjáð sig skriflega og munnlega um undirbúin efni. Þeir eiga einnig að vera færir um að skilja venjulegt talað og ritað mál almenns eðlis. Nemendur eru þjálfaðir í framburði og læra að beita undirstöðuatriðum málfræðinnar. Dönsk menning er kynnt og áhugi á henni vakinn.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • danska menningarsvæðinu og hvernig danska nýtist á norræna menningarsvæðinu almennt
    • orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum áfangans
    • grundvallarþáttum málkerfisins
    • formgerð og byggingu texta í töluðu og rituðu máli
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er skýrt og áheyrilega
    • lesa ýmiss konar texta á eigin áhugasviði eða texta um kunnugleg efni og beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir gerð textans eða viðfangsefnisins
    • taka þátt í almennum samræðum um efni sem hann þekkir eða hefur áhuga á og beita kurteisisvenjum, málvenjum og hljómfalli við hæfi
    • segja frá á skýran hátt með því að beita orðaforða, málvenjum, framburði, áherslum og hljómfalli á sem réttastan hátt
    • skrifa samfelldan texta um efni sem hann þekkir eða hefur áhuga á og nota viðeigandi málfar
    • fara eftir grundvallarreglum sem gilda um ritað mál
    • nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • fylgjast með frásögnum um almenn efni ...sem er metið með... hlustunum og umræðum
    • ná aðalatriðum úr fjölmiðlum og nýta sér þau, þegar fjallað er um kunnugleg efni ...sem er metið með... hlustunum og ritunarverkefnum
    • tileinka sér aðalatriðin í styttri lestextum og nýta á mismunandi hátt ...sem er metið með... umræðum og ritunarverkefnum
    • lesa sér til ánægju og þroska skáldskap af hæfilegu þyngdarstigi ...sem er metið með... lesskilningsverkefnum
    • ráða við mismunandi aðstæður í almennum samskiptum um kunnugleg efni ...sem er metið með... umræðum
    • útskýra og rökstyðja skoðanir sínar ...sem er metið með... umræðum og ritunarverkefnum
    • miðla eigin þekkingu og skoðunum á efni sem hann hefur kynnt sér ...sem er metið með... kynningum og ritunarverkefnum
    • skrifa um áhugamál sín og kunnugleg efni ...sem er metið með... ritunarverkefnum
    • leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra ...sem er metið með... kynningum, jafningjamati og sjálfsmati
    • þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum ...sem er metið með... umræðum og jafningjamati
    • meta eigið vinnuframlag ...sem er metið með... ritunarverkefnum og sjálfsmati
    Í áfanganum er viðhaft símat alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.