Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1329053746

    Saumtækni
    FATA1ST05
    2
    fatahönnun
    saum, tækni
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Nemendur læra að vinna með stærðartöflur, grunnsnið og sniðútfærslur. Lögð er áhersla á saumtækni með ýmsum gerðum af prufusaumi og læsi á vinnulýsingar í texta og myndum. Farið er sérstaklega í notkun á saumavélum, overlockvélum og straujárni. Unnið er með samspilið á milli tískuteikninga, flatra vinnuteikninga og sniðútfærslna í minni hlutföllum og yfirfærslu í fullar stærðir. Kennd er tenging sniða og efna varðandi teygjanleg og föstofin efni. Nemendur læra að mæla efnismagn fyrir flíkur út frá sniðum og notkun á flísilíni, tvinnagerðum og öðru tilleggi varðandi saumaskap og frágang. Saumaðar eru 1-2 flíkur og lögð áhersla á mátun og leiðréttingu sniða. Nemendur tileinka sér skipulagt vinnuferli og vandaðan frágang og læra uppsetningu vinnulýsinga, tískuteikninga og flatra vinnuteikninga í tölvum.
    FATA1SS05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • uppbyggingu grunnsniða
    • heiti sniðhluta, þráðréttu og mikilvægi saumamerkinga á sniðum
    • einföldum og flóknum sniðútfærslum í stöðluðum stærðum
    • notkun grunnsniða til að útfæra einfaldar flíkur
    • vinnulýsingum í texta og myndum
    • flötum vinnuteikningum við vinnslu á sniðum
    • saumtækni með prufusaumi s.s rennilásum og vösum
    • samspili efna og útfærslu sniða
    • aðferðum til að ákvarða efnismagn í flíkur út frá sniðum
    • vönduðum vinnubrögðum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna ýmsar sniðútfærslur út frá grunnsniðum í stöðluðum stærðum í minni hlutföllum
    • nota heiti sniðhluta markvisst og nota saumamerkingar á sniðum
    • útfæra og sauma flíkur eftir eigin málum
    • nýta sér vinnulýsingar í texta og myndum við prufusaum
    • koma hugmyndum af flíkum á blað
    • ákvarða samspil efnis og útfærslu sniða
    • ákvarða efnismagn sem þarf í flík út frá sniðum
    • vanda vinnubrögð við alla þætti vinnuferlisins
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vinna sjálfstætt einfaldar sniðútfærslur út frá grunnsniðum ...sem er metið með... verkefnum
    • sauma einfaldar flíkur eftir eigin sniðútfærslum ...sem er metið með... verkefnum
    • vinna eftir vinnulýsingum í máli og í myndum ...sem er metið með... verkefnum
    • sjálfstætt ákvarða efnismagn og tillegg sem þarf í flík samkvæmt sniðum og vinnulýsingum ...sem er metið með... verkefnum
    • vanda vinnubrögð við alla þætti vinnuferilsins frá hugmynd að tilbúinni flík ...sem er metið með... verkefnum
    Mat er lagt á verklagni, áhuga og framfarir, metnað og vandvirkni við alla þætti vinnuferlisins. Öllum verkefnum skilað til lokamats í lok annar.