Það kom upp villa
senda inn
Áfangi
Áfangi Nánari upplýsingar
Farið í helstu hugtök erfðafræðinnar, erfðafræði Mendels, sameindaerfðafræði og erfðatækni. Einnig verður fjallað um stökkbreytingar og litningagalla.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- frumuskiptingunum mítósu og meiósu.
- kenningum Mendels og helstu hugtökum erfðafræðinnar.
- hvernig erfðaefni hefur áhrif á fjölbreytileika lífvera.
- uppbyggingu DNA.
- DNA afritun, umritun og þýðingu.
- mismunandi gerðum stökkbreytinga.
- grundvallaratriðum í erfðatækni.
- litningagöllum og erfðasjúkdómum.
- tjáningu gena.
- genastjórnun í lífverum og hvað gerist ef hún bregst.
- tengslum erfða og þróunar.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- greina mismunandi fasa frumuskiptinga í sýnum í smásjá.
- reikna út líkur á erfðum tengdra og ótengdra eiginleika gena.
- rekja einfaldar erfðir og setja upp í ættartöflur.
- tengja saman niturbasaröð í DNA, basaröð í RNA og amínósýruröð próteina.
- leita í og nota íslenskar og erlendar heimildir um ýmis málefni erfðafræðinnar.
- fjalla um álitamál erfðatækninnar.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- geta fylgst með og tekið þátt í umræðum sem tengjast erfðafræði.
Verkefni og próf.