Hér verður kafað dýpra í jarðfræðileg viðfangsefni og byggt á þeim grunni sem nemendur hafa öðlast í fyrri áföngum. Þær stofnanir sem fjalla um jarð- og veðurfræði verða kynntar og heimsóttar. Nemendur þjálfast í að lesa vísindarit og greinar, flokka og leita að upplýsingum.
JARÐ2JS054 eða JARÐ2VH05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
sérafmörkuðum jarðfræðilegum viðfangsefnum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna gagnaöflun um jarðvísindi, bæði á erlendri og íslenskri tungu.
afla heimilda, lesa fræðigreinar á íslensku og ensku og nota þær við ritgerðarsmíð.
setja upp heimildaskrá og vinna heimildaritgerðir.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
fylgjast með virkum jarðfræðilegum fyrirbærum líðandi stundar í heiminum.
taka þátt í umræðum um flóknari jarðfræðileg málefni.