Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1331026937

    Lotubundnir eiginleikar, rafefnafræði og kjarnaefnafræði
    EFNA3RL03
    7
    efnafræði
    lotubundnir eiginleikar, rafefnafræði og kjarnaefnafræði
    Samþykkt af skóla
    3
    3
    Efnisþættir sem teknir verða fyrir í áfanganum eru: Lotukerfið og lotubundnir eiginleikar, málmar og málmleysingjar, rafefnafræði, kjarnaefnafræði. Efnafræði á háskólastigi – inntökupróf, forkröfur, námsefni og hjálp við undirbúning. Kynningar á námskeiðum og háskólum.
    EFNA3JL05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • lotukerfinu og lotubundnum eiginleikum frumefnanna
    • tengslum raforku og efnafræði
    • kjarnahvörfum og hvernig þau eru ólík venjulegum efnahvörfum
    • kröfum sem gerðar eru í háskóla með tilliti til efnafræði og hvernig hægt er að mæta þeim
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • rata um lotukerfið og geta sagt til um og útskýrt eiginleika efna eftir stöðu þeirra í lotukerfinu
    • nota afoxunarspennutöflur til að finna út hvort líklegt sé að efnahvarf verði
    • reikna út orku sem hægt er að fá út úr efnahvarfi út frá íspennu rafhlöðu
    • sjá út möguleg kjarnahvörf út frá upplýsingum um kjarna og setja fram líkleg kjarnahvörf
    • skoða og skilja til hvers er ætlast af nemanda sem hefur háskólanám í efnafræði og tengdum greinum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • velja háskólanám við hæfi
    • aðlaga eigin námstækni að nýju námsumhverfi
    • nýta þekkingu úr efnafræði til að taka ákvarðanir, mynda sér skoðanir og taka þátt í umræðum sem byggja á þekkingu í efnafræði
    • öðlast yfirsýn yfir efnafæðina sem grein
    • takast á við frekara nám í efnafræði og tengdum greinum á háskólastigi
    Símatsáfangi