Aðstoð við kennslu 1. bekkjar nema á náttúruvísindabraut. framhaldsáfangi í efnafræði á náttúruvísindabraut
EFNA3KE02
1
efnafræði
aðstoð við kennslu 1. bekkjar nema á náttúruvísindabraut. framhaldsáfangi í efnafræði á náttúruvísindabraut
Samþykkt af skóla
3
2
Rifjaðir verða upp þeir hlutar fyrsta áfanga (EFNA2AM05) sem ollu mestum erfiðleikum á 1. ári. Nemendur fá leiðsögn um hvernig við stöndum að kennslu 1. bekkjar. Aðstoð við kennslu í EFNA2AM05.
EFNA3JL05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grunnatriðum efnafræðinnar (mól og efnajöfnur)
hvernig best sé að koma grunnatriðum til skila til yngri nemenda
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
reikna dæmi sem fjalla um grunnatriði efnafræðinnar og skilja lögmál sem liggja að baki
koma þessari þekkingu til skila til yngri nemenda á skýran hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
miðla eigin grunnkunnáttu til sér yngri nemenda
fá yfirsýn yfir eigin kunnáttu í grunnatriðum efnafræðinnar