Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1331571925

    Frá fornöld til barrokktímabils
    LIST2FB05
    2
    listasaga
    fornöld til barrokktímabils
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum verður listasaga Vesturlanda frá fornöld til loka barrokktímabilsins kennd. Fjallað verður meðal annars um steinaldarlist, list Egypta, Grikkja og Rómverja, rómanska list og gotík, endurreisn og barrokk. Nemendur vinna fjölbreytt verkefni sem tengjast stíltímabilum, leita upplýsinga og ítarefnis í ólíkum miðlum og kynna rannsóknarniðurstöður fyrir samnemendum sínum. Nemendur verða þjálfaðir í vinnu verkefna um sögu og sögulega þróun með því að greina atburði og hugmyndir á tímabilinu.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu stíleinkennum í myndlist frá fornöld til loka barrokktímabilsins
    • nöfnum og verkum helstu myndlistarmanna á endurreisnar- og barrokktíma
    • hvernig verk myndlistarmanna geta verið ólík þótt þau tilheyri sama stíl
    • hvernig samfélagsgerð og tíðarandi hefur áhrif á hugmyndir, viðfangsefni og útfærslu verka myndlistarmanna
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • greina sögulega þróun myndlistar og samhengi hennar
    • miðla sögulegri þekkingu til annarra
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • bera saman, finna tengsl, einfalda og draga ályktanir af listasögunni og þróun hennar ...sem er metið með... verkefnum og prófum
    • vinna sjáfstætt og setja fram sögulegar greiningar ...sem er metið með... verkefnum og munnlegri framsögn
    • vinna skipulega með sögulegan texta og setja fram á rökrænan hátt ...sem er metið með... verkefnum og prófum
    Námsmat byggir á verkefnum, ástundun og þátttöku í umræðum og lokaprófi.