Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1331976617

    Akríl-og olíumálun
    MÁLV3AO05
    1
    málverk
    akríl- og olíumálun
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Áhersla verður lögð á að kenna og þjálfa nemendur í að mála málverk mð akrýllitum, blandaðri tækni og olíulitum með því að vinna markvisst ferli frá frumskissu , tilraunum með liti, form og myndbyggingu og til lokaniðurstöðu. Nemendur læra að strekkja striga á blindramma. Haldið áfram að þróa vatnslitamálun sem skissutæki fyrir málverk og vinna málverk með blandaðri tækni þar sem m.a. verður unnið með því að teikna og mála samhliða í sömu mynd. Nemendur vinna að mestu eftir eigin hugmyndum. Áhersla er lögð á að nemendur hengi upp verk sín og skoði þau í samhengi og þjálfist í að ræða um þau. Nemendur kynnast verkum íslenskra samtímalistamanna bæði í tímum og með því að fara á sýningar og einnig völdum verkum erlendra málara sem tengjast efni áfangans
    MÁLV2GR05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hvernig nota á akrýlliti og olíuliti við gerð málverka
    • hvernig blanda má teikningu og ýmsum efnum í málverk
    • hvernig valdir myndlistarmenn vinna málverk sín
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • mála tvívíð verk með fjölbreyttri tækni og efni
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • mála myndverk með mismunandi litum og tækni, frá frumskissu til lokamálverks og ganga frá því í blindramma ...sem er metið með... verkefnum
    Símat þar sem öll verkefni nemenda, verkleg og skrifleg, verða metin með tilliti til tækni, fagurfræði, vinnusemi, vinnubragða og hvernig nemandi tekur tilsögn kennara.