Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1332409857

    Hversdagsheimspeki
    HEIM2HH05
    4
    heimspeki
    hverdagsheimspeki
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Hvað er platónsk ást? Hvað eru rök? Hvað er gott líf? Er hægt að svíkja en samt vera trúr? Heimspeki er aðferð til að íhuga líf okkar. Í áfanganum hversdagsheimspeki (hagnýt heimspeki) verða spurningar sem brenna á vörum okkar daglega teknar til athugunar. Siðfræði og þekkingarfræði koma við sögu. Hvað er réttlæti ? Er örugg þekking möguleg? Ræddar verða spurningarnar út frá kenningum heimspekinga en jafnframt okkar eigin reynslu.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • völdum viðfangsefnum heimspekinnar á sviði siðfræði og þekkingarfræði
    • kenningum forngrískra heimspekinga um réttlæti einstaklings og samfélags
    • rökum, hvernig þau eru skilgreind og hvernig þau eru metin
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • þekkja heimspekilegan texta
    • greina rökstuðning og forsendur hugmynda
    • lýsa aðferðafræði heimspekinnar við úrlausn mála
    • vinna með heimildir í APA kerfinu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • beita heimspekilegum hugtökum á daglega reynslu ...sem er metið með... verkefnum,prófum og munnlegri framsögn
    • átta sig á heimspekilegum meginreglum og beita þeim ...sem er metið með... verkefnum,prófum og munnlegri framsögn
    • setja saman klípusögur til að varpa ljósi á heimspekileg vandamál ...sem er metið með... verkefnum
    • bæta sig sem siðferðisveru ...sem er metið með... verkefnum,prófum og munnlegri framsögn
    Lokapróf og verkefni.