Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1336050004

    Körfuknattleikur
    ÍÞRÓ2KK03
    4
    íþróttir
    körfuknattleikur
    Samþykkt af skóla
    2
    3
    Áfanginn er að öllu leyti verklegur og markmið hans er almenn hreyfing. Í þessum áfanga fer hreyfingin fram í formi iðkunar körfuknattleiks. Lagt er upp með að nemandinn upplifi líkamlega og félagslega ánægju í gegnum þjálfunina.
    ÍÞRÓ1HR03
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • megin leikreglum í körfuknattleik
    • grunnatriðum í leikfræði körfuknattleiks
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • leika körfuknattleik sér til heilsubótar og ánægju
    • beita félagsfærni
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • átta sig á mikilvægi hreyfingar fyrir andlega og líkamlega líðan einstaklingsins
    • vinna með öðrum og vera hluti af hópi
    Verkefni, mæting og ástundun í tíma.