Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1336125241

    Skapandi skrif
    LEIK3SS05
    3
    leiklist
    skapandi skrif
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Áfanginn skal veita nemendum tækifæri til að þróa og þroska eigin rithæfileika með ýmsum æfingum og verkefnum. Nemendur skrifa marga texta í áfanganum og skoða mismunandi stílbrögð og gerðir texta. Ein af áherslum áfangans er að gefa nemendum tæki og tól til að vinna á skapandi og hugmyndaríkan hátt þar sem rödd hvers og eins fær að njóta sín. Markmið áfangans er einnig að opna heim ritlistarinnar fyrir nemendum og sýna þeim fram á þau tækifæri sem þar liggja. Sérsök áhersla er á að kenna nemendum að sækja sér kveikjur í nærsamfélag sitt svo þeir geti speglað það í riti.
    LEIK2LS05 og LEIK2SL05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • nokkrum mismunandi stílum í ritlist
    • hversu ólíkan hátt er hægt að miðla með texta
    • að hugmyndakveikjur eru til staðar í okkar daglega lífi
    • hvernig eigin ritskoðun getur verið heftandi
    • þeim tjáningarmöguleikum sem ritlistin býr yfir
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota eigin rödd í skrifum
    • ritskoða sig ekki
    • byggja um blæbrigðaríkan texta
    • skrifa stuttan leikþátt, ljóð, smásögu, sem og aðra texta
    • finna eigin innblástur til að skrifa texta
    • beita sjálfsaga í vinnubrögðum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • spegla samfélag sitt í skrifum út frá tjáningarþörf og rödd sinni sem metið er með skriflegum verkefnum, umræðum, dagbók og lokaverkefni
    • greina leikverk, ljóð, smásögur og aðra texta út frá mismunandi stílum sem metið er með umræðum, skriflegum verkefnum og dagbók
    • finna hugmyndakveikjur í daglega lífinu fyrir skrifum og listsköpun sem metið er með smærri verkefnum og lokaverkefni
    • ritskoða ekki eigin hugmyndir heldur treysta þeim hugmyndum sem upp koma sem metið er með skriflegum verkefnum, umræðum og lokaverkefni
    • skrifa ljóð, leiksenur, smásögur og aðra texta sem metið er með skriflegum verkefnum og lokaverkefni
    • tjá sig í ræðu og riti á uppbyggilegan hátt um skrif samnemenda sinna sem metið er með umræðum og skriflegum verkefnum
    Nemendur skrifa dagbók, skrifleg verkefni eru í áfanganum að lokum verður lokaverkefni.