Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1337169876

    leiklist
    LEIK1LE05
    4
    leiklist
    leiklist
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í áfanganum fá nemendur kynningu og innsýn í heim samtíma leiklistar og verklega þjálfun í því að vinna skapandi með rými, hljóð og líkama. Nemendur eru kynntir fyrir þeim möguleikum sem sviðslistarmiðillinn hefur upp á að bjóða og þeir þjálfaðir í að nýta þá möguleika til úrvinnslu og framkvæmda hugmynda sinna. Áhersla er lögð á þjálfun í að nýta sköpunaraðferðir, innrömmun hugmynda og hæfni til að útfæra þær á listrænan hátt með skýrri heildarmynd. Að auki verða grunnþættir leiksýningagreiningar kynntir, farið verður með nemendur áfangans í leikhús og fá þeir í kjölfarið tækifæri til að spreyta sig á greiningum.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Að nemendur öðlist leikni í skapandi vinnu með rými, hljóð og líkama sem miðla.
    • Að opna augu þeirra fyrir möguleikum óhefðbundinna leikrýma, að þjálfa leikni þeirra í rýmisskynjun og rýmisnotkun í listsköpun, skilji takmarkanir þeirra og möguleika.
    • Að nemendur þjálfist í notkun nokkurra vinnuaðferða og „tækja“ leiklistarinnar og geti nýtt sér þau við gerð innsetninga, mynda og stuttra sena og skapað með þeim andrúmsloft og áhrif.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Einnig er stefnt að því að nemendur öðlist grunnþekkingu í orðaforða innan fagsins og greiningu á leiksýningum, sem og þekkingu á fjölbreyttum þáttum leiklistar, svo sem rými, líkama, hljóði og lýsingu og öðlist hæfni í samsetningu þessara þátta.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Ennfremur verður stuðlað að aukinni hæfni nemenda í framkomu, sjálfstæðum vinnubrögðum og samvinnu og því að efla leikni þeirra í að koma hugmyndum sínum í framkvæmd bæði sem einstaklingar og í hópi.
    Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.