Í áfanganum eru kennd grunnatriði trésmíða með áherslu á þekkingu og færni í notkun handverkfæra og rafmagnshandverkfæra, trésamsetningum, límingum, pússningu og yfirborðsmeðferðum. Nemendur kynnast notkun algengra tegunda viðarlíms og yfirborðsefna og tekið er fyrir val og umhirða á verkfærum. Í áfanganum eru tvö smíðaverkefni unnin.
Engar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
umgengni og notkun á rafmagnshandverkfærum og öðrum handverkfærum
helstu öryggisþáttum
vinnuaðstöðu og vinnumhverfi
meðferð, notkunarsvið og virkni einstakra hand- og rafmagnsverkfæra
öryggisregluum einstakra hand- og rafmagnshandverkfæra
meðferð og notkun einstakra límtegunda
grunnatriðum í yfirborðsmeðferð smíðaviðar og plötuefnis
öryggisreglum og öryggisráðstöfunum við yfirborðsmeðferð svo sem lakks og annarra efna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota mismunandi tegundir verkfæra, véla og efna
nota algengustu hand- og rafmagnshandverkfæri
nota áhöld til mælinga og uppmerkinga
bera yfirborðsefni á tré með mismunandi hætti
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
smíða hluti eftir eigin vali og getu út frá vinnuteikningum og vinnulýsingum
Nemendur vinna tvö smíðaverkefni sem metin verða ásamt ástundun og virkni.