Í þessum áfanga er lögð áhersla á að kenna undirstöðuatriði í notkun á tölvum og upplýsingamennt. Lögð er áhersla á að nemendur nýti sér hugmyndafræði dreifnáms og læri að skipuleggja sig í námi.
Leitast er við að nýta frían hugbúnað og þann hugbúnað sem er fyrir
í tölvunni. Meðal annars prufa nemendur að vinna verkefni í ritvinnslu, töflureikni, myndvinnslu, hönnunarforriti, teikniforriti, vefhönnunarforriti, hljóðupptökuforriti. Nemendum er ekki bent á eitt forrit sem er réttara en annað heldur er þeim bent á nokkur forrit sem nýtast við úrvinnslu verkefnanna.
Áfanganum er ætlað að hjálpa nemendum að blanda saman verkþekkingu á tölvur og aðferðum og skipulagi í dreifnámi.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helsta opna hugbúnaði sem er í boði
ritvinnslu og töflureikni
myndvinnslu og hljóðvinnslu
tölvum og internet
lögum og reglum sem snúa að tölvum og interneti
hugmyndum dreifnáms
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
setja upp verkefni og ritgerðir eftir viðurkenndum leiðum
nota heimildir og tilvísanir eftir APA kerfinu
nota algengustu formúlur, jöfnur og gröf í töflureikni
búa til margmiðlunarefni eins og stuttmyndir, teiknimyndir og hljóðefni
nota gagnasöfn, orðabækur, þýðingavélar og leiðréttingarforrit
nota viðeigandi hjálpargögn við frágang verkefna
afla upplýsinga eftir fjölbreyttum leiðum
nota þau forrit og vefi sem eru í boði við verkefnavinnu
nota google docs og ýmis önnur frí forrit og tól sem eru í boði hverju sinni
verða sjálfbjarga í að finna út hvað þeir geta notað sér til aðstoðar við verkefnavinnu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta metið efni af neti á gagnrýninn hátt ...sem er metið með... umræðum, sjálfsmati kynningum og skriflegum verkefnum
geta metið í hvaða formi hentar best að skila efni frá sér hverju sinni ...sem er metið með... ýmis konar mismunandi verkefnum, ss mynd og hljóðskrám, teiknimyndum, kynningum, umræðum og skriflegum verkefnum
hafa tileinkað sér grunnhugmyndir varðandi dreifnám ...sem er metið með... sjálfsmati, umræðum og skriflegum verkefnum
skipuleggja nám sitt ...sem er metið með... sjálfsmati, umræðum og skriflegum verkefnum
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.