Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1339495410

    Yndislestur
    ENSK2YN03
    8
    enska
    yndislestur
    Samþykkt af skóla
    2
    3
    Markmið áfangans er að gefa nemendum tækifæri til að lesa fjölbreyttar skáldsögur á ensku sér til ánægju og yndisauka. Bókalistinn samanstendur til dæmis af vísindaskáldsögum, samtímabókmenntum, klassík, spennusögum og ævintýrabókum. Nemendur velja sér fjórar bækur af bókalista sem kennari leggur til og segja kennara síðan frá hverri bók að loknum lestri.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi lestrar
    • mismunandi stíltegundum bókmenntaverka
    • þeirri ánægju sem felst í lestri bóka
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • greina aðalatriði texta
    • veita uppbyggilega gagnrýni um lesin bókmenntaverk
    • stuðla að málefnalegri umræðu um ákveðin stef eða þemu í lesnum bókmenntaverkum á ensku
    • tjá og rökstyðja persónulegar skoðanir sínar á ensku
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • auka ánægju sína við lestur enskra bókmenntaverka
    • lýsa flóknum atburðum með skýrum hætti á ensku
    Símatsáfangi sem byggir á fjórum skilafundum yfir önnina