Námskeiðið er framhaldsáfangi í fagorðaforða (academic vocabulary) til undirbúnings
fyrir háskólanám. Unnið er með ritrýndar fræðigreinar á tilteknum fræðasviðum svo sem náttúruvísindum, félagsvísindum og hugvísindum. Farið er í orðstofna og myndun orða í ensku út frá t.d. latínu og grísku. Leitað er fanga í fagtímaritum og ritrýndum faggreinum af netmiðlum og gagnasöfnum. Nemendur fá tilsögn í heimildaleit fyrir rannsóknarvinnu á háskólastigi. Miðað verður við þarfir hópsins hverju sinni þar sem farið er nánar í orðaforða sem tengist væntanlegu námssviði nemenda við nám eftir stúdentspróf. Áfanginn skiptist í þrjár lotur. Í fyrstu lotunni er viðfangsefnið almennt, þar sem megináherslan er á myndun og notkun fagorða. Í annarri lotu er unnið í hópum þar sem skoðaður er orðaforði afmarkaðra sviða á háskólastigi, s.s. hugvísinda, félagsvísinda, raunvísinda o.s.frv. Síðasta lotan er einstaklingsmiðuð og þar vinna nemendur verkefni sem tengist beinlínis þeirra áhugasviði.
Ensk3BR05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
fagorðaforða einstakra greina á háskólastigi
orðmyndun fagorða
rýndum fræðigreinum
heimildaleit og greiningu rýndra fræðigreina í bókum, tímaritum og rafrænum gagnasöfnum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
þekkja og greina fagorð og myndun þeirra
mynda fagorð
meta fræðigreinar með tilliti til áreiðanleika og hagnýts gildis
finna heimildir fyrir rannsóknarvinnu á háskólastigi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tileinka sér fræðigreinar á sínu sérsviði
umrita og gera útdrátt úr fræðigreinum
rita texta sem uppfyllir lágmarkskröfur um fræðilegan orðaforða
afla sér fræðilegra heimilda á gagnrýninn hátt
Áfanginn er símatsáfangi þar sem námsmat byggist á viðveru í tíma, könnunum, tileinkun nemandans á sjálfstæðum vinnubrögðum, verkefnavinnu og vinnuskilum.