Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1329311198

    Inngangur að sálfræði
    SÁLF2IS06
    6
    sálfræði
    inngangur að sálfræði
    Samþykkt af skóla
    2
    6
    Nemendur fái innsýn í fræðigreinina, helstu viðfangsefni hennar, rannsóknaraðferðir og sögu hennar. Fjallað verður um helstu sjónarmið í nútímasálfræði, ennfremur um minni og námstækni, viðbragðsskilyrðingu og tengsl hennar við daglegt líf, til dæmis ótta, lært bjargarleysi og áhrif auglýsinga; einnig um virka skilyrðingu í sambandi við t.d. uppeldi og hegðunarvandamál; og sjálfsmynd og samskipti. Nemendur beiti vísindalegri aðferð og hugsun við gerð lítilla rannsókna.
    Engar.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu sviðum sálfræðinnar og sögu hennar
    • kenningum sem markað hafa þáttaskil í sálfræði
    • hugmyndum þekktra sálfræðinga
    • rannsóknar- og starfsaðferðum sálfræðinga
    • rannsóknum þekktra sálfræðinga á borð við Pavlov og Skinner
    • nýjum straumum í sálfræði á borð við
    • gildi sálfræðinnar í daglegu lífi
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • greina þá þætti sem sjálfsmynd er samsett úr
    • beita hugökum sálfræðinnar á skýran og skilmerkilegan hátt
    • greina grein fyrir niðurstöðum sálfræðirannsókna
    • setja fram spurningar og taka þátt í umræðu um sálfræðilegt efni
    • tjá kunnáttu sína á munnlegan og skriflegan hátt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skilja sálfræðilega umfjöllun ...sem er metið með... prófum, verkefnum og umræðum
    • gera greinarmun á geðveiki og siðblindu ...sem er metið með... prófi og verkefni
    • afla sér upplýsinga um sálfræðileg efni, greina aðalatriði þeirra og nýta sér til frekari vinnslu ...sem er metið með... verkefnum og rannsókn
    • vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra á gagnrýninn hátt ...sem er metið með... einstaklingsverkefnum og rannsókn sem unnin er í hóp
    • geta áttað sig á því hvenær málefni krefjast sálfræðilegrar umfjöllunar ...sem er metið með... umræðum í kennslustundum
    Leiðsagnarmat þar sem vinna nemanda er metin jafnóðum allan námstimann. Til grundvallar matinu eru eftirfarandi þættir: Rannsóknaráætlun (10%); rannsókn (20%); ýmis tímaverkefni og/eða próf (70%).