Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1329312362

    Enska - lestur, skilningur, málfræði og orðaforði
    ENSK2LS06
    17
    enska
    lestur, málfræði, orðaforði, skilningur
    Samþykkt af skóla
    2
    6
    Í áfanganum er lögð áhersla á tjáningu,lestur texta, ritun og undirstöðuatriði enskrar málfræði með það fyrir augum að byggja upp virkan og hagnýtan orðaforða. Einnig er hugtakið menningarlæsi kynnt með umburðarlyndi gagnvart öðrum menningarheimum í huga. Lesnir verða valdir rauntextar af netinu og úr kennslubók, auk þess sem nemendur lesa valin skáldverk. Skriflegi þátturinn er þjálfaður með fjölbreyttum æfingum. Nemendur eiga að tileinka sér munnlega tjáningu á ensku og er þeim leiðbeint í kennslustundum þar sem öll tjáskipti fara fram á ensku.
    Grunnskólapróf
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • enskri menningu og enskri tungu
    • menningu í öðrum enskumælandi samfélögum
    • almennum málfræðireglum
    • sérkennum ritmáls og talmáls
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita almennum málfræðireglum í rituðu máli
    • nota orðabók og viðeigandi hjálpargögn
    • tjá kunnáttu sína munnlega og skriflega
    • lesa og greina bókmenntatexta
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • tjá sig í ræðu og riti á ensku
    • verða sjálfbjarga í upplýsingaöflun á ensku
    • geti aflað sér upplýsinga um ensk málsamfélög
    • lesa sér til gagns og gamans
    Hópaverkefni og kynningar: 20% Munnleg próf: 20% Skrifleg próf: 20% Lesefnispróf og verkefni: 10% Skrifleg verkefni: 15% Þáttaka og frammistaða í tímum: 15%