Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1352393834

    Boltagreinar: knattspyrna og blak
    BOLT2KB05
    1
    boltaíþróttir
    knattspyrna blak
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Farið verður í grunntækniatriði, leikfræði, spilaform og reglur í báðum íþróttagreinunum ásamt keppnisformi beggja greinanna hjá börnum (7 manna bolti og krakkablak). Einnig verður farið í þjálfunar- og kennsluaðferðir, s.s. heild/hluta/heild og þróunaraðferðina (frá því einfalda til hins flókna)
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • grunnreglum íþróttagreinanna
    • keppnisformi íþróttagreinanna hjá börnum (7 manna bolti og krakkablak)
    • tækniatriðum og leikfræði íþróttagreinanna
    • helstu þjálfunar- og kennsluaðferðum
    • uppsetningu og uppbyggingu tímaseðils við kennslu eða þjálfun íþróttagreinanna hjá börnum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • framkvæma grunntækniatriði íþróttagreinanna
    • setja upp tímaseðil fyrir börn í íþróttagreinunum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta dæmt kappleiki hjá börnum í íþróttagreinunum ...sem er metið með... prófi úr leikreglum og verklegri kennslu þar sem þau dæma
    • geta starfað sem leiðbeinandi hjá börnum í íþróttagreinunum ...sem er metið með... tímaseðlagerð og kennslu á þeim
    Í áfanganum er leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar. Nemendur þurfa einnig að standast mætingarkröfur áfangans.