Tveir umræðutímar eru á önninni, annar fyrir miðannarmat og hinn eftir miðannarmatið. Umræðuefnið er annars vegar fjölstöðuþjálfun (plyometrics training) og hins vegar liðleikaþjálfun. Nemendur fá lesefni og síðan verður umræðutími í kennslustund um efnið. Einnig eiga nemendur að velja a.m.k. 100 bls lesefni sem tengist íþróttum, hreyfingu eða heilsu almennt og eiga nemendur síðan að hafa kynningu á lesefninu í kennslustundum undir lok annarinnar.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi þjálfunar og hvað markviss og skipulögð þjálfun er
mikilvægi þess að skipuleggja þjálfunin fram í tímann
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
gera þjálfunaráætlun sem nær yfir ákveðið tímabil (skólaönnina)
gera þjálfunardagbók yfir ákveðið tímabil (viku)
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
setja upp skipulagða þjálfunaráætlun ...sem er metið með... umræðum og skriflegum verkefnum
leita sér aukinnar þekkingar á viðfangsefninu sínu (íþróttagreininni eða þjálfuninni sinni) ...sem er metið með... munnlegu prófi
Í áfanganum er leiðsagnarmat með símat alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar. Nemendur þurfa að skila þjálfunaráætlun í upphafi annar, sem síðan er endurskoðuð eftir miðannarvikuna ásamt vikudagbók á hverjum sunnudagi alla önnina.