Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1352394640

    Markviss íþróttaþjálfun
    ÍÞJÁ2MÞ03
    2
    íþróttaþjálfun
    markviss íþróttaþjálfun
    Samþykkt af skóla
    2
    3
    Áfanginn er fyrir nemendur sem eru í afreksþjálfun, skipulagðri íþróttaþjálfun hjá íþróttafélagi eða stunda markvissa og skipulagða heilsuræktarþjálfun. Nemendur fá þessa þjálfun metna til eininga. Nemendur þurfa að skila ákveðinni vinnu, bæði hvað varðar þjálfunina og verkefnaskil. Engin skipulögð kennsla er í áfanganum en nemendur og umsjónarmaður munu hittast reglulega yfir önnina til að fara yfir mál hvers og eins nemanda.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi þjálfunar og hvað markviss og skipulögð þjálfun er
    • mikilvægi þess að skipuleggja þjálfun fram í tímann
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • gera þjálfunaráætlun sem nær yfir ákveðið tímabil (skólaönnina)
    • gera þjálfunardagbók yfir ákveðið tímabil (viku)
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • setja upp skipulagða þjálfunaráætlun ...sem er metið með... umræðum og skriflegum verkefnum
    • leita sér aukinnar þekkingar á viðfangsefninu sínu (íþróttagreininni eða ákveðnu þjálfunarformi) ...sem er metið með... munnlegu prófi
    Áfanginn er metinn lokið/ólokið. Leiðsagnarmat með símati alla önnina.