Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1352984322

    Íþróttagrein-körfuknattleikur
    ÍÞRG1KÖ04
    2
    íþróttagrein
    körfuknattleikur
    Samþykkt af skóla
    1
    4
    í áfanganum læra nemendur að kenna börnum undirstöðuatriði í körfuknattleik. Lögð er áhersla á kennslu knatttækni og leikfræði fyrir byrjendur. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallarfærni í greininni. Farið er yfir helstu atriði í þjálffræði barna og mikilvægi þess að leikurinn sé greindur sundur í stuttar einingar, leikæfingar. Nemendur þjálfist í kennslu körfuknattleiks. Áfanginn er bóklegur og verklegur.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • að leiðbeina börnum á mismundandi aldri í körfuknattleik
    • kennslu í knatttækni
    • kennslu leikfræðinnar
    • skipulagi á þjálfun fyrir börn og unglinga
    • leikreglum
    • helstu þjálfunaraðferðum
    • mikilvægi á fjölbreyttum tækni- og leikæfingum i? körfuknattleik
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Búa til tímaseðla fyrir mismunandi aldur körfuknattleiks iðkanda
    • beita flautu og dæma körfuknattleik
    • beita mismunandi þjálfunaraðferðum með ákveðin markmið að leiðarljósi svo sem þol, kraft og tækni
    • samskiptum við foreldra
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta þjálfað ýmsa aldurshópa í körfuknattleik
    • geta búið til tímaseðla, vikuáætlun og mánaðaráætlun með ákveðinn aldur í huga
    • geta kennt börnum rétta knatttækni
    • geta beitt fjölbreyttum aðferðum við körfuknattleiksþjálfun
    • geta dæmt körfuknattleik
    Próf 30%, verkleg kennsla 30%, mæting og virkni 40%