Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1353662400

    Líffæra- og lífeðlisfræði mannsins
    LÍFF3LÆ06
    9
    líffræði
    líffæra og lífeðlisfræði
    Samþykkt af skóla
    3
    6
    Í áfanganum eru tekin fyrir helstu líffærakerfi mannsins og grunnlífeðlisfræði þeirra. Fjallað um heilbrigða starfsemi en einnig algengustu frávik (orsakir þeirra og afleiðingar).
    LÍFF1FR06 og LÍFF2FL06
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu vefjagerðum
    • byggingu húðar og þátt í hitatemprun
    • uppbyggingu og starfsemi helstu líffærakerfa mannsins s.s. meltingar-, hringrásar-, ónæmis-, loftskipta-, þveitis-, tauga-, stoð- og æxlunarkerfis
    • mismunandi gerðum skynnema og skynfæra
    • helstu innkirtlum og hormónum þeirra
    • mataræði; hlutverki vítamína, stein- og snefilefna
    • algengustu frávik heilbrigðar starfsemi, orsakir og afleiðingar
    • áhættuþáttum í líferni sem auka líkur á sjúkdómum
    • kynheilbrigði og getnaðarvörnum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita hugtökum námsefnisins
    • geta fjallað um heilbrigða starfsemi líffærakerfa
    • tengja í heild starfsemi líffærakerfa
    • geta greint frá helstu frávikum frá eðlilegri starfsemi líffærakerfa
    • skoða frumur og vefi með ljóssmásjá
    • beita réttum vinnureglum við krufningar og fleiri verklegar æfingar
    • vinna skýrslur úr verklegu efni
    • nýta upplýsingatækni við öflun upplýsinga og heimilda við verkefnavinnu
    • vinna sjálfstæð kynningarverkefni úr námefninu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • tengja undirstöðuþekkingu úr fyrri líffræðiáföngum við námsefnið
    • geta tjáð sig um námefnið og skýrt út starfsemi helstu líffærakerfa
    • þekkja eigin líkama og gera sér grein fyrir mikilvægi góðrar heilsu
    • taka ábyrgð á eigin lífsháttum og heilsu
    • beita vísindalegum vinnubrögðum innan sem utan kennslustofunnar
    • takast á við frekara nám í náttúru- og/eða heilbrigðisgreinum
    Leiðsagnarmat þar sem vinna nemanda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar matinu eru eftirfarandi þættir: Kaflapróf; meðaltal prófa á önninni (50%); skilyrði til þess að ná áfanganum er lágmark 4,5 úr meðaltali prófa. Ýmis einstaklingsverkefni, skýrslur úr verklegum æfingum, niðurstöður úr hópverkefnum (40%); skilyrði til þess að ná áfanganum er lágmark 4,5 úr meðaltali allra verkefna. Mat kennara á vinnu nemenda, vinnubrögðum og framförum (10%).