Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1353583732

    Íþróttasálfræði
    SÁLF2ÍÞ05
    11
    sálfræði
    félagsstörf, félög, íþróttasálfræði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Áfanginn er tvíþættur. Fyrst er fjallað um félög og félagstarf, stofnun þeirra, kynningarmál og samkomuhald á þeirra vegum. Þessum hluta lýkur með verkefni sem tengist efninu. Seinna í áfanganum verður fjallað um helstu þætti íþróttasálarfræðinnar. Skoðuð verða ýmis áreiti sem áhrif hafa á afreksgetu íþróttamanna. Ennfremur fjallar áfanginn um spennu (streitu) og helstu spennuvalda, slökun og hug-rækt af ýmsu tagi. Skoðað verður hvernig vinna má með sjálfstraust og sjálfsmynd íþróttamannsins í því skyni að bæta árangur. Fjallað verður um muninn á einstaklings- og hópíþróttum og farið í áhrif félagslegra þátta á íþróttamanninn. Efnisatriði: Félog og félagsstarf, hlutverk félagsstjórna, kynningarstarf félaga og samkomuhald, Íþróttasálfræði, hvatning, íþróttaleiðtoginn/þjálfarinn, skynjun og viðbragðsþjálfun, andlegt ástand, spennustilling, slökun, íþróttir og greind, hugræn þjálfun, hópastarf, keppni eða ekki keppni.
    ÍÞRF2ÞJ05 eða FÉVÍ1ÞF05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • félögum og félagslögum
    • helstu áreitum sem herja á íþróttamenn
    • þeim þáttum sem mynda sjálfsmynd íþróttamannsins
    • mikilvægi hvatningar í íþróttum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • þekkja lagaumhverfi og helstu tengingar í starfsemi félaga
    • vinna markvisst með sjálfstraust og sjálfsmynd íþróttamannsins
    • nota slökunartækni af ýmsu tagi til að minnka spennustig íþróttamanna
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • standa fyrir félagslegum uppákomum af ýmsu tagi t.d. innan síns félags
    • minnka eða auka spennustig íþróttamanna í æfingu og leik
    • hvetja iðkendur til dáða, fá þá til gera sitt allrabesta í starfi og leik
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.