Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1353594510

    Flokkunarfræði
    LÍFF2FL06
    9
    líffræði
    flokkunarfræði
    Samþykkt af skóla
    2
    6
    Kynning á fjölbreytileika lífríkis jarðar. Nútíma flokkunarfræði er tekin til umfjöllunar og ýmis dæmi kynnt úr hverjum hóp.
    LÍFF1FR06
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • byggingu, fjölgun og sníkilseiginleikum veira
    • byggingu, flokkun og æxlun baktería
    • byggingu og lífsháttum sveppa, fléttna og frumvera
    • völdum dæmum í lífsferlum há- og lágplantna
    • þróun lífsferils plantna frá mosum til dulfrævinga
    • sérhæfingu gró- og kynliðar plantna
    • æxlun háplantna og aldinmyndun
    • einkenni ein- og tvíkímblöðunga
    • flokkunareinkennum helstu fylkinga dýraríkisins
    • völdum dæmum úr helstu fylkingum dýra
    • þróunartengslum vefdýra
    • lögun og samhverfum dýra
    • þróun líkamshols
    • frum- og síðmynnla lífverum
    • þróun fremdardýra
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • gera verklegar æfingar
    • vinna skýrslur úr efni verklegra æfinga
    • nota greiningalykla
    • leysa verkefni sem tengjast flokkunarfræði lífvera
    • leysa verkefni sem tengjast námsefninu almennt
    • nýta upplýsingatækni við öflun efnis og heimilda við verkefnavinnu
    • vinna sjálfstæð verkefni til kynningar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • tengja undirstöðuþekkingu í frumulíffræði og erfðafræði við námefni áfangans ...sem er metið með... upprifjun og sjálfsmati
    • tengja undirstöðuþekkingu í flokkunarfræði við daglegt líf ...sem er metið með... fjölbreyttum verkefnum og umræðum
    • þekkja/geta greint í ríki og fylkingar algengar lífverur í umhverfi okkar ...sem er metið með... margvíslegum verkefnum, skriflegum og verklegum
    • bera virðingu fyrir og taka ábyrga afstöðu til hegðun sinnar m.t.t. lifandi náttúru ...sem er metið með... verkefnum og umræðum
    • afla sér upplýsinga og frekari þekkingar varðandi viðfangsefnið ...sem er metið með... margvíslegum verkefnum
    • undirbúa sig fyrir frekara nám í náttúruvísindum
    Leiðsagnarmat þar sem vinna nemanda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar matinu eru eftirfarandi þættir: Kaflapróf; meðaltal skriflegra prófa á önninni (50%). Skilyrði til að ná áfanganum er að meðaltal kaflaprófa nái 4,5. Ýmis einstaklingsverkefni, skýrslur úr verklegum æfingum, niðurstöður úr hópavinnuverkefnum (40%); skilyrði til að ná áfanganum er að meðaltal einkunna úr verkefnum nái 4,5. Mat kennara á vinnu nemenda, vinnubrögðum og framförum (10%).