Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1355763512

    Bókfærsla
    BÓKF2BÓ06
    3
    bókfærsla
    bókfærsla framhaldsáfangi
    Samþykkt af skóla
    2
    6
    Kunnátta nemenda á bókhaldi er dýpkuð með flóknari færslum og kynningu á nýjum reikningum. Byrjað verður að fara í tolla og síðan í launabókhald. Sérstök áhersla er lögð á meðhöndlun verðtryggðra skuldabréfa, erlendra lána, hlutabréfa og hlutafjár í bókhaldi. Innflutningur vöru í gegnum töllvörugeymslu og óbeinar afskriftir á varanlegum eignum er tekinn fyrir. Kennt verður á tölvubókhald í síðasta hluta námskeiðsins.
    BÓKF1IN04_2
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu reikningum og aðferðum sem notaðar eru við færslu bókhalds
    • grunnþáttum í launabókhaldi
    • grunnþáttum í meðferð hlutabréfa og skuldabréfa í bókhaldi
    • grunnþáttum bókunaraðferða vegna erlendra viðskipta
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • færa handvirkt og í tölvubókhaldi daglegan fyrir rekstur minni fyrirtækja
    • lagfæra bókhaldið með hliðsjón af athugasemdum
    • gera upp fyrirtæki hvort sem um ársuppgjör eða slit á fyrirtæki er að ræða
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • greina frá almennum reikningum sem notaðir eru í dagbók
    • geta fært dagbókarfærslur fyrir minni fyrirtæki með fyrirliggjandi upplýsingum
    • geta lagfært bókhaldið með fyrirliggjandi upplýsingum
    • geta gert upp efnahags- og rekstrarreikning með hliðsjón af fyrirliggjandi upplýsingum
    Námsmatið er tvíþætt. Nemendur þreyta próf í tímum 60% og senda inn skilaverkefni, 40%. Meðaleinkunn fyrir hvern og einn af þessum tveimur þáttum þarf að vera minnst 4.5 til þess að standast áfangann. Nái einn af þáttunum tveimur ekki 4.5, gildir sú einkunn sem lokaeinkunn áfangans.