Markmið áfangans er að kynna nemendum grunnatriði kvikmyndagerðar í gegnum stuttmynda-og/eða heimildarmyndaformið. Jafnframt að kynna fyrir nemendum mismunandi uppbyggingu kvikmynda eftir eðli þeirra og tegund. Nemendur læri meginatriði stuttmyndagerðar, gerð tökuáætlunar, undirbúning á upptökustað, grunnatriði í beitingu kvikmyndatökuvélar og grunnatriði við notkun sérhæfðs klippiforrits. Nemendur skila í lok áfangans stuttmynd (leikna eða heimildarmynd), sem unnin er í hópvinnu.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
meginatriðum í uppbyggingu kvikmyndar
mismun á helstu tegundum kvikmynda
grunnatriðum við upptöku kvikmyndar s.s. gerð tökuáætlunar, undirbúningi fyrir tökur og beitingu kvikmyndatökuvélar
lýsingu og hljóðupptöku á tökustað
grunnatriðum við klippingu og samsetningu kvikmyndar
grunnatriðum hljóðvinnslu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja og geta nýtt sér grunnatriði handritsgerðar fyrir kvikmyndaverk
velja tökustað og undirbúa tökur með hliðsjón af leikmynd og lýsingu
skilja og geta tileinkað sér grunnatriði upptöku á mynd og hljóði
skilja og geta tileinkað sér grunnatriði við klippingu og samsetningu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
setja saman einfalda tökuáætlun að leikinni stuttmynd eða stuttri heimildarmynd
undirbúa og taka upp leikna stuttmynd eða stutta heimildarmynd
setja saman og ganga frá leikinni stuttmynd eða stuttri heimildarmynd
aðstoða við lítið sérhæfða vinnu með kvikmyndatökuvél