Í áfanganum verður lögð áhersla á teikningar unnar með viðarkolum og blýanti. Einnig á endurnýtingu efnis í listum, teikningalestur og fallmyndun í grunnteikningu. Nemandinn þjálfi sig í að skoða, greina og meta fyrirmyndir sínar á kerfisbundinn og rökrænan hátt. Þjálfist í að nota hjálpargögn, svo sem neikvæð form, lóðlínu og hjálparlínur, til að bera saman stærðarhlutföll. Alhliða þjálfun í teikningu og rannsókn á gildi og tjáningarmöguleikum línuteikningar. Nemandinn þjálfist í að meta hluti frá formi, lit og áferð og geti með því endurnýtt ólík og ótengd efni í listaverk. Áhersla lögð á að nemendur þjálfist í að leggja mat á vinnu sína og annarra.
Nemendur eru hvattir til að þróa hugmyndir sínar og samhliða vinnu í tíma er ætlast til þess að þeir haldi skissubók þar sem þeir vinna og þróa hugmyndir sínar frá því sem gert er í tímum.
Sjónlist 1
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Möguleikum viðarkola og blýants í teikningu
Tjáningarmöguleikum línuteikningar
Þýðingu neikvæðra forma
Hvernig hægt er að nota mælingaraðferðir og hjálparlínur til að leggja mat á stærðarhlutföll
Möguleikum endurnýtingu efnis í listum
Einföldum fallmyndum
Einföldum grunnteikningum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Vinna með blýants- og kolateikningar
Nota hjálpargögn í teikningu
Teikna mismunandi hluti í réttum hlutföllum
Sjá möguleika með endurnýtingu efnis í listum
Teikna einfaldar fallmyndir
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Meta hluti út frá formi, lit og áferð
Bera saman hugmyndir sínar og samhliða teikningu
Lesa og vinna með einfaldar grunnteikningar
Greina og meta fyrirmyndir sínar á kerfisbundinn og rökrænan hátt ræða um og leggja mat á vinnu sína og annarra