Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1361889922.81

    Smiðja 2
    NÝSK3SM04_2
    None
    nýsköpun
    smiðja 2
    Samþykkt af skóla
    3
    4
    Að nemendur geti tekið fyrri þekkingu á hinum ýmsu efnum og unnið í framhaldi af fyrri þekkingu úr smiðjunum. Hér eiga nemendur að vinna að verkefni sem býr yfir þróun og frekari þekkingu á viðfangsefninu. Hér reynir á sköpunarhæfni nemandans, frumkvæði og sjálfstæða hugsun.
    Leður- og roðsmiðja, Rafsmiðja, Trésmiðja og Málmsmiðja
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Hvernig hægt er að nýta hin ýmsu efni og þróa hugmyndir sínar út frá viðfangsefninu
    • Kostum og göllum hinna ýmsu efnistegunda
    • Getu og takmörkum mismunandi tækjabúnaðar með tilliti til efnisvals
    • Aðferðum sem hafa að markmiði að bæta nýtingu hráefna, sem og förgun úrgangs
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Geta skipulagt og framkvæmt eigin hugmynd
    • Haldið áfram með fyrir hugmyndir og þróað áfram eða vinna að nýrri hugmynd á nýjum forsendum
    • Bera ábyrgð á efnisvali og annast birgðahald þeirra efna sem nota skal við framkvæmdina
    • Velja viðeigandi verkfæri og tækjabúnað með tilliti til framkvæmdarinnar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Geta komið hugmynd sinni á það form að mögulegt sé að framleiða hana, teikningar, efnisval og annað sem hefur áhrif sé sett upp á skipulegan og aðgengilegan máta
    • Greina orsakir galla sem fram koma í framkvæmd og mæla fyrir um aðgerðir til úrbóta
    • Geta greint hvort tilskyldum reglum sé fylgt eftir varðandi öryggismál