Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1361956823.98

    Plastlagning og móturn
    PLAS2PM05
    6
    Plastiðnir
    mótun, plastlagning
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Markmið áfangans er að kynna nemendum þróaðri gerðir og aðferðir við plastframleiðslu, framleiðsluaðferðir og framleiðslutækni.
    PLAS1PM05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þeim kröfum sem smíðamót þurfa að fullnægja
    • nútímalegum aðferðum við smíðar úr trefjaplasti
    • verklagi sem þarf að viðhafa til að fá rétta og nákvæma lögun og yfirborðsáferð
    • mismunandi efnum sem henta til mótagerðar og við plastlagningu með tilliti til lögunar og áferðar
    • aðferðum við gæðaeftirlit með hráefnum, gerð prufustykkja og framkvæmd málningar á þeim
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • velja efni til og smíða mót til trefjaplastsmíði
    • velja viðeigandi framkvæmd til framleiðslu á tilteknum hlut með tilliti til þeirra eiginleika sem sá hlutur skal gæddur
    • teikna hlut sem á að framleiða, málsetja hann og reikna út hlutfall trefja og annars hráefnis og smíða hlutinn þannig að hann svari til þess sem hönnun hans gerði ráð fyrir.
    • annast gæðapróf á hráefnum og fullunnum vörum bæði sjónrænt og með viðeigandi mælitækjum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • smíða flóknari smíðahluti úr trefjastyrktu plasti, með tilheyrandi styrk og áferð ...sem er metið með... verkefnaskilum.
    • smíða mót til plastlagningar og samlokuhluti með mismunandi gerðum kjarnaefna ...sem er metið með... verklegu verkefni
    Símat byggt á verkefnum, sjálfsmati og jafningjamati.