Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1361959823.6

    Plastframleiðslutækni
    PLAS1PT05
    3
    Plastiðnir
    Plastframleiðslutækni
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Markmið áfangans er að kynna nemendum mismunandi framleiðsluaðferðir í plastiðn, framleiðsluundirbúning, svo sem smíði móta, efnisval, val á tækjabúnaði, framleiðslustýringu og framkvæmd eftirlits með gæðum framleiðslunnar. Í áfanganum er fjallað um líkana- og mótagerð, um verksmiðju- og framleiðsluskipulag, um áhöld og tæki til nota við framleiðslu, um frágang vöru og um tilhögun eftirlits með framleiðslunni. Verklegi þáttur námsefnis þessa áfanga felst í samhliða starfsnámi hjá viðurkenndu fyrirtæki eða innan skólastofnunar þar sem nemandi starfar að plastsmíði undir handleiðslu og fyrirsögn leiðbeinanda.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • framleiðsluferlum, tækjabúnaði og aðstöðu sem þarf til plastframleiðslu
    • nauðsynlegum undirbúningi að framleiðslu, þ.e. vali á viðeigandi efnum og tækjum til tiltekinnar framleiðslu
    • merkingum á umbúðum hráefna og fyrirmælum um meðferð þeirra
    • getu og takmörkunum mismunandi tækjabúnaðar með tilliti til framleiðsluaðferða, framleiðslugæða og afkasta
    • notkun tölvustýrðra iðnvéla í plastframleiðslu
    • aðferðum sem beitt er við framleiðslustýringu og eftirlit með framleiðslu afurða úr plasti
    • aðferðum og tækjabúnaði sem notaður er við fjöldaframleiðslu hluta úr plasti
    • aðferðum sem beita má til að auka framleiðslugetu eða hagkvæmni framleiðslu án þess að rýra gæði afurðar
    • framleiðsluferlum við notkun sprautusteypuvéla allt frá undirbúningi undir framleiðslu til þess er framleiðslu er lokið
    • framkvæmd gæðaeftirlits með framleiðslu á einstökum framleiðslustigum
    • aðferðum til að tryggja gæði hráefna og hagkvæma nýtingu þeirra
    • ráðstafanir sem viðhafa skal til að tryggja vinnuöryggi og heilsu starfsmanna
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • meta og greina kosti og galla mismunandi framleiðsluaðferða við val á framleiðsluaðferð til tiltekinnar framleiðslu
    • meta og velja heppilegasta tækjabúnað og framleiðsluaðferð við framleiðslu á tiltekinni afurð
    • mæla fyrir um framleiðsluferli við notkun sprautusteypuvéla allt frá undirbúningi framleiðslu, til þess er framleiðslu er lokið
    • útbúa ítarlega áætlun um hráefnisnotkun, framleiðslukostnað og nauðsynlegan verktíma
    • útbúa framleiðsluáætlun þar sem horft er til birgðastöðu hráefna, aðdrætti aðfanga og mannafla
    • mæla fyrir um og annast viðhald tækjabúnaðar og framleiðslueftirlit
    • annast viðeigandi gæðaeftirlit með framleiðslu og framkvæmd gæðamats
    • fara að fyrirmælum um meðferð hráefna og geymslu þeirra
    • útbúa prufur til nota við gæðaeftirlit og láta framkvæma viðeigandi prófanir á þeim.
    • greina orsakir galla sem fram koma í framleiðslu og mæla fyrir um aðgerðir til úrbóta
    • sjá til þess að öllum heilbrigðis- og vinnuverndarskilyrðum, sem og umhverfisskilyrðum sem gilda um starfsemina sé fullnægt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skipuleggja og bera ábyrgð á framleiðslu á afurðum úr plastefnum ...sem er metið með... skriflegum verkefnum og prófi
    • tryggja að starfsemin lúti þeim heilbrigðis- og umhverfiskröfum sem gilda um slíka starfsemi ...sem er metið með... verkefnum og prófi
    • leiðbeint starfsmönnum og mælt fyrir um aðgerðir og ráðstafanir á mismunandi áföngum framleiðsluferlis ...sem er metið með... verkefnum, hlutaprófum, jafningjamati og sjálrfsmati
    • annast eða stjórnað gæðaeftirliti með framleiðslu fyrirtækis ...sem er metið með... verkefnum, hlutaprófum, jafningjamati og sjálfsmati.
    Símat byggt á verkefnum, hlutaprófum, sjálfsmati og jafningjamati.