Markmið áfangans er að kynna nemendum framleiðsluaðferðir og framleiðslutækni við smíðar úr trefjaefnum umfram það sem fjallað er um í áfanga PLAS1PT05. Fjallað er um framleiðsluundirbúning og framleiðsluferla svo sem gerð og smíði móta, efnisval, efnisnotkun val á viðeigandi verkfærum og tækjabúnaði, framleiðslustýringu og ráðstöfunum við eftirlit með gæðum framleiðslunnar.
PLAS 1 PT 05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hlutverki og ábyrgð framleiðslustjóra eða verkstjóra við trefjaplastsmíði
getu og takmörkum mismunandi tækjabúnaðar með tilliti til framleiðsluaðferða
verklagi og verktíma á mismunandi framleiðslustigum, framleiðslustjórnun, notkun hráefna, birgðahald, heildarframleiðsluafköst og eftirlit með gæðum framleiðslu
tilhögun framleiðslustýringar og eftirlits með framleiðslu afurða úr trefjaplasti
aðferðum og tækjabúnaði sem hentar við fjöldaframleiðslu hluta úr plasti
þáttum sem þarf að fullnægja til að nota “vaccum” kerfi við plastbátasmíði
aðferðum sem hafa að markmiði að bæta nýtingu fráefna
reglum um húsakynni og aðstöðu við trefjaplastframleiðslu og tilhögun eftirlits
reglum um starfsleyfi til smíði báta og skipa úr trefjaplasti og viðgerðir á þeim
reglum sem gilda um smíði og viðgerðir á skipum og bátum og þær reglur sem gilda um eftirlit með smíði og viðgerðum
ráðstöfunum sem viðhafa skal til að tryggja vinnuöryggi og heilsu starfsmanna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
greina kosti og galla mismunandi framleiðsluaðferða
geta skipulagt framleiðsluferil við trefjaplastsmíði með tilliti til einstakra framleiðslustiga
bera ábyrgð á efnisvali, öflun hráefna, annast birgðahald þeirra efna sem nota skal við framleiðsluna
velja viðeigandi verkfæri og tækjabúnað til framleiðslunnar með tillliti til framleiðsluaðferðar
skipuleggja einstaka framleiðsluþætti og efnisnotkun hvers þeirra
sjá til þess að viðeigandi teikningum sé skilað til opinberra aðila og að lögboðið eftirlit fari fram með smíðinni
greina orsakir galla sem fram koma í framleiðslu og mælir fyrir um aðgerðir til útbóta
framkvæma áhættugreiningu á framleiðsluferli til að koma í veg fyrir tjón vegna bilana í tækjum eða óvæntum truflunum í starfseminni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skipuleggja og stjórna smíði eða viðgerðum og breytingum á skipum sem smíðuð eru úr trefjaplasti ...sem er metið með... verkefnum og prófi
sjá til þess að farið sér að þeim lögum og reglum sem um slíka starfsemi gilda ...sem er metið með... verkefnum og prófi
sjá til þess að gæði framleiðslunnar samræmist þeim kröfum og reglum sem um hana gilda hverju sinni