Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1362138105.04

    Lýðheilsa 2
    LÝÐH1LH02_1
    None
    lýðheilsa
    Lýðheilsa - verklegt og bóklegt
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Áfanginn er bóklegur og verklegur. Áfanginn er kenndur Þrjár kennslustundir í viku. Ein kennslustund í viku er bókleg lýðheilsufræði og tvær kennslustundir eru verklegar íþróttir. Í bóklegri lýðheilsufræði verður byggt ofan á þá þætti sem unnið var með í fyrri áfanganum. Í þessum áfanga verður svo lögð sérstök áhersla á kynjafræði, frjármálalæsi, heilbrigðan lífsstíl og námstækni. Árangursrík samskipti eru mikilvæg öllum, nemendur hljóta því æfingu í hópefli bæði í æfingum og verkefnum. Í verklega hluta áfangans er lögð áhersla á fjölþætta hreyfingu og þol. Nemendur geta valið um almennar íþróttir svo sem heilsuræktarstöðvar, hjólreiðar, sund, gönguferðir, fjallaferðir, hjólreiðatúra sem og boltaíþróttir líkt og körfubolta, fótbolta, handbolta og fleira.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Mikilvægi góðrar heilsu fyrir framtíðina þar á meðal mikilvægi hollrar næringar, góðum svefn, vímulausrar ævi o.s.frv.
    • Skaðsemi tóbaks, áfengis og annara vímuefna
    • Mikilvægi árangursríkra samskipta óháð kyni, litarhætti, búsetu, efnahag, kynhegðun og trúarbrögðum fyrir einstaklingana sjálfa sem og fyrir skólabraginn
    • Mikilvægi reglubundinnar hreyfingar og þols sem forvarnar gegn ýmsum andlegum og líkamlegum sjúkdómum
    • Mikilvægi þess að vinna jafnt, þétt og skipulega í náminu
    • Lánum, sparnaði, greiðslukortum, vöxtum, gengi, veði og öðru sem tengist fjármálalæsi
    • Mikilvægi þess að bera virðingu fyrir hinu kyninu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Setja sér raunhæf markmið varðandi nám í skóla
    • Efla félagsþroska sinn og eiga árangursrík samskipti við aðra óháð kyni, litarhætti, trúarbrögðum, kynhegðun, efnahag og búsetu
    • Nota Moodle, Innu og tölvukerfi skólans á árangursríkan hátt
    • Nota þekkingu sína og leikni til að ná sér í upplýsingar og nota þær til að efla og viðhalda góðri andlegri og líkamlegri heilsu
    • Auka úthald sitt og styrk með því að stunda reglubundna hreyfingu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Nota heilsulæsi sitt til þess að efla og viðhalda góðri andlegri og líkamlegri heilsu
    • Bera ábyrgð á eigin námi og stunda það af bestu getu
    • Eiga í árangursríkum samskiptum við aðra einstaklinga og geta borið umhyggju og virðingu fyrir öðrum
    • Bera virðingu fyrir hinu kyninu með þeim hætti að hver einstaklingur fái tækifæri til þess að efla sjálfsálit og sjálfstraust sitt
    • Skipuleggja fjármál sín af ábyrgð og með hagsýni í huga
    Símat, ferilmappa, verklegar og bóklegar æfingar, heimsóknir, jafningjamat og sjálfsmat.