Aflfræði, hiti og kvikfræði, varmi, afstæðiskenningin og sjálfvalið eðlisfræðiefni
EÐLI3AH05
1
eðlisfræði
Aflfræði, afstæðiskenningin og sjálfvalið eðlisfræðiefni, hiti og kvikfræði, varmi
Samþykkt af skóla
3
5
Í áfanganum eru nemendur látnir vinna með hugtök og þekkingu úr neðangreindum þáttum eðlisfræðinnar. Samtímis því eru nemendur þjálfaðir í þeim vinnubrögðum sem notuð eru við bóklegt og verklegt nám í þessum þáttum. Nemendur vinna bæði sjálfstætt og í hópum og lögð er áhersla á sjálfstæði og ábyrgð nemandans á eigin námsframvindu. Stefnt er að því að fara með hópinn í heimsókn í háskóla og/eða stofnun þar sem notast er við raungreinaþekkingu. Efnisþættir sem teknir verða fyrir eru: hringhreyfing og þyngdarsvið, skriðþungi og vökvar, hiti og kvikfræði , varmafræði, takmarkaða afstæðiskenningin og sjálfvalið eðlisfræðiefni.
EÐLI2GR05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu hugtökum sem notuð eru til að lýsa hringhreyfingu og þyngdarsviði, skriðþunga og vökvum, hita og kvikfræði , varmafræði, takmörkuðu afstæðiskenningunni s.s. tvíburaþversögnina, fjórðu víddina (tíma) og sambandi massa og orku og fyrirbærum tengdum þeim efnisþáttum
helstu lögmálum sem tengjast ofangreindum efnisþáttum svo sem þyngdarlögmáli Newtons, lögmálinu um varðveislu skriðþunga, atlagslögmálinu, lögmálum Pascals og Arkimedesar, lögmálum Boyls, Charles og Gay-Lussacs, (kjör)gaslögmálinu (ástandsjöfnu gass), lögmálinu um varðveislu orkunnar.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna með tölur og vigra í eðlisfræði og í vísindalegum vinnubrögðum
beita lögmálum og jöfnum við að leysa verkefni af ýmsu tagi
leiða út með rökrænum hætti jöfnu fyrir sambandi stærða út frá gefnum forsendum
vinna með hin ýmsu mælitæki við að framkvæma verklegar æfingar og vinna úr mæliniðurstöðum þeirra, m.a. með tölvuforritum eins og Word og Excel
setja fram eðlisfræðilegt umfjöllunarefni á skýran og markvissan hátt í ræðu og riti
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu
nota námsefni og gögn á markvissan hátt
yfirfæra þekkingu úr öðrum greinum til að auðvelda námið
meta hvort niðurstöður útreikninga og mælinga séu raunhæfar
tengja eðlisfræðina við daglegt líf og umhverfi og gera sér grein fyrir notagildi hennar