Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur geri sér grein fyrir námskröfum skólans og aðlagist vel nýju skólastigi og skólaumhverfi. Farið er í skipulagningu á tíma og námi og kynntar eru árangursríkar námsaðferðir. Nemendur læra aðferðir til að takast á við streitu og kvíða. Einnig fá nemendur fræðslu í samræmi við forvarnaráætlun skólans.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
námskröfum skólans
aðferðum til að skipuleggja tíma og nám
árangursríkum námsaðferðum
leiðum til að takast á við álag í námi s.s. streitu og kvíða
forvarnarstarfi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nýta tíma sinn vel og nota námsaðferðir sem skila árangri
setja sér markmið sem námsmaður og einstaklingur
þekkja skólaumhverfið og helstu starfsemi skólans
draga úr áhrifum streitu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nota skipulögð vinnubrögð í námi
takast á við álag í námi
efla styrkleika sína og vinna að því að þeir nýtist sem best.