Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1362920973.79

    Danska fyrir sláturiðn
    SLÁT2DS03
    1
    Slátrari
    Danska fyrir sláturiðn
    Samþykkt af skóla
    2
    3
    Í áfanganum er lögð áhersla á hefðbundið talað og ritað mál. Áhersla er á að auka lesskilning og orðaforða nemenda, munnlega og skriflega tjáningu. Nemendur þjálfist í notkun á hjálpartækjum við leit að upplýsingum t.d er tengjast faginu. Áhugi er vakinn á danskri menningu og slátraranám í Danmörku notað sem hugmynd að verkefnavinnu.
    Grunnskólapróf eða ígildi þess. Raunfærnimat.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Mikilvægi þess að geta útvegað og tileinkað sér upplýsingar og þekkingu varðandi daglegt líf og fagsvið sitt.
    • Mikilvægi notkunar á hjálpargögnum s.s. orðabókum, málfræði- og uppsláttarritum sem og rafrænum miðlum.
    • Mikilvægi þess að nota tungumálið á virkan þátt bæði í hversdagslífi og atvinnulífi á þeim sviðum sem tengjast fagþekkingu nemenda.
    • Mikilvægi þess að læra vinnubrögð varðandi tungumálanám og notkun málsins sem nýtist í frekara nám og starfi.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Tjá sig á einföldu og auðskildu máli í ræðu og riti
    • Rita almennan texta á áhugasviði og fagsviði nemenda og með aðstoð orðabókar.
    • Lesa almenna texta á áhugasviði og fagsviði nemenda og með aðstoð orðabókar jafnvel erfiðari texta.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Beita trú á eigin getu til tjáskipta á dönsku bæði almennt og ekki síður þegar horft er til fagsviðs.
    • Beita fræðilegum vinnubrögðum tungumála við áframhaldandi nám og störf.
    100%Símat. Námsmatið byggir á öllum færniþáttum í tungumálanámi, tali, hlustun, lestri og ritun.