Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1362921700.81

    Íslenska fyrir sláturiðn
    SLÁT2ÍS03
    3
    Slátrari
    Íslenska fyrir sláturiðn
    Samþykkt af skóla
    2
    3
    Í áfanganum er lögð áhersla á að þjálfa nemendur í lesskilningi á fagtengdu námsefni, skýrum framburði, ritun og munnlegri tjáningu Farið er í grunnþætti ritgerða og verkefnasmíða. Nemendur skrifa lýsandi texta s.s skýrslur um fagtengd viðfangsefni, flytja kynningar um viðfangsefni slátrunar og gera heimildaritgerð.
    Grunnskólapróf eða ígildi þess. Raunfærnimat.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Helstu hugtökum sem notuð eru við ritgerðar og verkefnagerð ásamt heimildavinnu.
    • Að koma hugsunum sínum og skoðunum í orð, bæði í ræðu og riti.
    • Málfræðihugtökum og ritreglum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Skrifa stafréttan texta og skýrslur um fagtengd málefni.
    • Rita rökfærsluritgerðir um fagtengt viðfangsefni þar sem nemandi beitir gagnrýninni hugsun og kemur skoðunum sínum á framfæri á skýran og greinargóðan hátt.
    • Nýta sér málfræðihugtök og málfræðilegar upplýsingar til að efla eigin málfærni.
    • Flytja af nokkru öryggi ræður, endursagnir, lýsingar og kynningar á tileknum málefnum.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Vinna að skapandi verkefnum í tengslum við fagtengt viðfangsefni og sýna töluverð tilbrigði í málnotkun.
    • Beita skýru, lýtalausu og blæbrigðaríku máli í ræðu og riti s.s við kynningar á fagtengdu efni og í fagtengdum umræðum.
    • Taka þátt í málefnalegum umræðum, byggja upp skýra röksemdafærslu, tjá afstöðu og efasemdir um efnið og komast að niðurstöðu.
    Lokapróf 50% og verkefnaskil s.s ritgerð um fagtengt viðfangsefni, kynningar á fagtengdum viðfangsefnum o.sv.frv.