Í áfanganum er lögð áhersla á einfalt enskt tal og ritmál, þar sem viðfangsefni í verkefnum nemenda eru fagið, starfið, vinnustaðurinn, tækin, hreinlæti, auglýsingar og gæði.
Grunnskólapróf eða ígildi þess. Raunfærnimat.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Mikilvægi þess að geta útvegað og tileinkað sér upplýsingar og þekkingu varðandi daglegt líf og fagsvið sitt sem slátrari.
Mikilvægi þess að geta talað og skrifað einfalda og auðskilda ensku í ræðu og riti.
Notkun hjálpargagna s.s. orðabóka, málfræði- og uppsláttarrita sem og rafrænna miðla.
Mikilvægi þess að læra vinnubrögð varðandi tungumálanám og notkun þess sem nýtist í frekara nám og starfi.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Lesa almenna texta á áhugasviði og fagsviði slátrunar og með aðstoð orðabókar jafnvel erfiðari texta.
Útvega sér og tileinka sér upplýsingar og þekkingu varðandi daglegt líf og fagsvið sitt.
Tjá sig á einföldu og auðskildu máli í ræðu og riti.
Rita almennan texta á áhugasviði og fagsviði og með aðstoð orðabókar.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Öðlast tiltrú á eigin getu til tjáskipta og á rituðu máli á ensku bæði almennt og í daglegu starfi sínu sem slátrari.