Markmið áfangans er að nemendur fái undirstöðuþekkingu í markvissum vinnubrögðum hvað varðar vinnuslys, hópslys og náttúruhamfamfarir. Kennsla í skyndihjálp fer fram með bóklegum og verklegum æfingum. Áhersla er á almenna skyndihjálp við slasaða og sjúka.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Algengustu slysum sem verða á vinnustað með áherslu á frumframleiðslufyrirtæki líkt og sláturhús.
Mikilvægi þess að kunna og geta beitt þeim handtökum sem þarf við fyrstu hjálp og geti veitt markvissa hjálp á vettvangi.
Mikilvægi helstu viðbragða og ráðstafana við slysum sem verða á vinnustað.
Mikilvægi forvarna hvað varðar vinnuslys.
Þeim hættum sem geta stafað af efnum, t.d klór og öðrum sambærilegum efnum og gert varúðarráðstafanir gagnvart þeim.
Staðsetningu sjúkrakassa og kunni að nota innihald hans við fyrstu hjálp.
Viðbrögðum við brunavörnum og meðferð mismunandi slökkvitækja.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Beita markvissri fyrstu hjálp við þeim slysum sem verða á vinnustað með áherslu á sláturhús.
Bregðast við með markvissum vinnubrögðum ef eldur kemur upp á vinnustað með áherslu á sláturhús.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Geta beitt undirstöðuþekkingu sinni í fyrstu hjálp og markvissum vinnubrögðum ef slys verða á vinnustað sem og ef um hópslys eða slys vegna náttúruhamfara á sér stað.