Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1362936971.51

    Upplýsingatækni - sláturiðn
    SLÁT1UP05
    8
    Slátrari
    Upplýsingatækni
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í áfanganum er lögð áhersla á notkun á tölvum og forritum sem nýtast nemendum sem best í framhaldsskólanámi og í störfum sínum sem slátrarar. Sérstök árhersla er lögð á Microsoft Office, Excel og Power –Point. Farið verður í ritvinnslu, töflureikni og glærukynningar með Prezi. Nemendur fá kynningu á Open Office
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Þeim möguleikum sem Microsoft Office, Excel, Prezi og Power-Point bjóða uppá.
    • Mikilvægi notkunar á ritvinnslu, töflureikni og glærugerð við nám og störf.
    • Mikilvægi þess að geta beitt þeim hugbúnaði sem til er í skólanum og á vinnustað í réttu samhengi.
    • Mikilvægi þess að geta leitað sér upplýsinga t.d hvað varðar fagtengt málefni eftir margvíslegum leiðum.
    • Mikilvægi þess að geta sett fram skýrslur á tölvutæku formi, sent tölvupósta og skrifað fagtengd bréf á rafrænu formi.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Nota Microsoft Office og Excel ásamt öðrum forritum til almennra nota, í námi sínu t.d í verkefnavinnu sem og við dagleg störf sín á vinnustað.
    • Nota ritvinnsluforrit, töflulreikni og glærugerðarforrit í verkefnum og daglegum störfum á vinnustað.
    • Setja upp nokkuð flókin verkefni í Office, Excel, Power-point og Prezi.
    • Nýta sér tölvuforrit við útreikninga, frágang á tölfræðilegum gögnum í vinnu og námi.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Trúa á eigin getu til að nota tölvur og ýmis forrit í daglegu lífi sínu, í námi og störfum á vinnustað.
    • Setja upp verkefni, skýrslur, ritgerðir og kynningar á ritvinnsluformi eftir viðurkenndum aðferðum.
    • Gera verkefni þar sem nemandi notar formúlur, jöfnur og setur upp gröf í töflureikni.