hlustun og ritun. skipting og sameining þýskalands, lesskilningur, munnleg tjáning
Samþykkt af skóla
2
5
Byggt er markvisst á þeirri kunnáttu sem nemendur hafa nú þegar tileinkað sér. Áfram er unnið með alla færniþættina með aukinni áherslu á munnlega tjáningu. Textar verða lengri og þyngri og unnið er með ákveðin þemu og mismunandi textaform, s.s rauntexta, bókmenntaefni, hlustunarefni og kvikmyndir. Nemendur vinna að hluta til sjálfstætt, m.a. verkefni að eigin vali. Orðaforði eykst og farið er í nokkur ný málfræðiatriði. Enn er unnið að því að bæta þekkingu nemenda á þýskumælandi löndum og þjóðum og sérstaklega fjallað um skiptingu og sameiningu Þýskalands. Meðal annars horfa nemendur á kvikmynd sem fjallar um þetta þema og skrifa
tímaverkefni um efni myndarinnar. Kröfur eru gerðar um sjálfstæð vinnubrögð í
áfanganum, til dæmis við lestur, notkun orðabóka og netsins.
ÞÝSK1ÞC05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum áfangans
ólíkum textagerðum, s.s. skáldsögum, smásögum, kvikmyndum og hlustunarefni
grundvallarþáttum málkerfisins
mannlífi og menningu í löndum þar sem þýska er töluð sem móðurmál og fengið nokkra innsýn í það sem þar er efst á baugi hverju sinni
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja talað mál um kunnugleg efni og greina aðalatriði í fjöl- og myndmiðlum þegar fjallað er um afmörkuð málefni
lesa margs konar gerðir texta og vinna úr þeim á mismunandi hátt eftir því hver tilgangur með lestrinum er hverju sinni
afla sér hagnýtra upplýsinga, taka þátt í samræðum um afmörkuð undirbúin efni og um efni sem hann þekkir
segja frá á skýran hátt, í nútíð og liðinni tíð, og halda stutta kynningu á undirbúnu efni með því að beita framburði og málnotkun á sem réttastan hátt
skrifa styttri samfelldan texta, t.d. samantekt úr kvikmynd eða ýmsum textum, draga ályktanir og tjá eigin skoðanir
nota upplýsingatækni og hjálpargögn, svo sem orðabækur, við ritun texta
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
fjalla á nokkuð ítarlegan hátt, munnlega og skriflega, um efni sem hann hefur kynnt sér og tjá eigin skoðanir og persónulega reynslu
tjá sig á þýsku við ýmsar aðstæður í almennum samskiptum og leysa úr málum sem upp geta komið
tileinka sér aðalatriðin í samtölum og frásögnum
tileinka sér efni mismunandi texta og geta dregið ályktanir ef efnið er kunnuglegt
geta metið eigið vinnuframlag og annarra
tileinka sér jákvætt viðhorf til þýskunnar og hafa trú á eigin kunnáttu